Lífið

Jón Arnar reyndi við tangó: „Væri fínt ef þú þekkir góðan hnykkjara“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnar og Hrefna Dís fóru á kostum.
Jón Arnar og Hrefna Dís fóru á kostum.
Jón Arnar Magnússon og Hrefna Dís Halldórsdóttir komu fram í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið en þau dönsuðu tangó.

Parið fékk samtals 14 stig í einkunn frá dómurunum eftir dansinn og voru dómararnir mjög ánægðir með útkomuna.

Dómararnir töluðu um að Jón Arnar þyrfti aðeins að rétta betur úr sér og spurning hvort hann ætti að reyna finna sér góðan hnykkjara til að vera með höfuðhreyfingarnar á hreinu. Jón Arnar starfar einmitt sem hnykkjari.  

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Jóni og Hrefnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×