Lífið

Javi sveiflaði Ebbu fram og til baka á dansgólfinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Javi og Ebba fengu 17 stig samtals frá dómurunum.
Javi og Ebba fengu 17 stig samtals frá dómurunum. Vísir/Skjáskot
Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Javier Fernández Valiño fóru mikinn í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið síðasta en þau dönsuðu Cha-cha-cha með miklum tilþrifum.

Ebba Guðný er þekkt fyrir það að vera sjónvarpskokkur en það var ekki að sjá, því hún geislaði á dansgólfinu.

Saman dönsuðu þau við lagið Let's Get Loud en parið fékk samtals 17 stig í einkunn frá dómurunum. Á sunnudaginn dansar parið Vínarvals.

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Ebbu og Javi frá því á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×