Lífið

Jóhanna Guðrún og Maxim hittu í mark með þessari frammistöðu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Parið fékk fína dóma.
Parið fékk fína dóma.
Jóhanna Guðrún og Maxim Petrov þóttu standa sig mjög vel í fyrsta þættinum af Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið síðasta en þau dönsuðu Slow Foxtrot.

Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún er vön því að koma fram á stórsviðinu en aldrei verið mikið í því að dansa.

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Max og Jóhönnu frá því á sunnudaginn en þau fengu þriðju bestu einkunn kvöldsins, eða 19 stig. 

Næstu þáttur verður á dagskrá á Stöð 2 á sunnudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×