Innlent

Á­rétta að ekki séu stundaðar ó­hefð­bundnar lækningar á Land­spítala

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Áréttingin kemur í kjölfar fréttar RÚV frá því á laugardag þar sem sagt var frá því að sálfræðingar lýstu yfir áhyggjum af óhefðbundnum lækningum á Landspítala.
Áréttingin kemur í kjölfar fréttar RÚV frá því á laugardag þar sem sagt var frá því að sálfræðingar lýstu yfir áhyggjum af óhefðbundnum lækningum á Landspítala. vísir/hanna
Landspítali áréttar í frétt á heimasíðu sinni að ekki séu stundaðar óhefðbundnar lækningar á spítalanum. Sjúklingum á mörgum deildum sé hins vegar boðið upp á fjölbreytta viðbótarmeðferð, sem skaðlausa en nytsama aukameðferð til hliðar við gagnreynda meðferð.

Áréttingin kemur í kjölfar fréttar RÚV frá því á laugardag þar sem sagt var frá því að sálfræðingar lýstu yfir áhyggjum af óhefðbundnum lækningum á Landspítala.

Var þar vísað í yfirlýsingu sem 50 sálfræðingar sendu nýlega til Sálfræðingafélags Íslands þar sem dagskrá málþings um samþætta heilbrigðisþjónustu er gangrýnd en þar var meðal annars fjallað um jóga, nálastungur og aðrar óhefðbundnar meðferðir.

 

Kemur fram í frétt RÚV að sálfræðingarnir hafi farið fram á það við Sálfræðingafélagið að það gagnrýndi að slíkum nálgunum og aðferðum væri gert hátt undir höfði af starfsfólki í heilbrigðiskerfinu sem sinnir fólki sem á við geðræn vandamál að stríða.

Í frétt á vef Landspítalans segir að nær allir spítalar á heimsvísu geri það sama og Landspítalinn, það er bjóði upp á aukameðferðir til hliðar við gagnreyndar meðferðir. Megi þar til dæmis nefna jóga, slökun og íþróttir.

„Eins og nafnið gefur til kynna er um viðbótarmeðferð að ræða, ekki meginmeðferð, né fá sjúklingar einungis þess háttar meðferð á Landspítala. Gagnreynd meðferð byggir á aðferðum, sem sýnt hefur verið fram á að skila árangri, enda byggja þær á faglegum vísindarannsóknum,“ segir á vef Landspítalans.

Rétt er að taka fram að fréttastofa óskaði í dag eftir viðtali við fulltrúa Landspítalans vegna málsins en spítalinn gat ekki orðið við þeirri beiðni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×