Körfubolti

Lengsta sigurgangan í Reykjanesbæjarslagnum í níu ár í boði í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Vísir/Eyþór
Keflvíkingar geta í kvöld náð fullu húsi á móti nágrönnum sínum í Njarðvík en það yrði þá annað árið í röð sem þeir afrekuðu það.

Seinni Reykjanesbæjarslagur tímabilsins í Domino´s deildar karla í körfubolta verður sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld. Keflavíkurliðið tekur þá á móti Njarðvík og hefst leikurinn klukkan 19.15.

Keflvíkingar geta náð lengstu sigurgöngu í Reykjanesbæjarslagnum í næstum því áratug takist þeim að vinna nágranna sína úr Njarðvík á heimavelli í kvöld. Lið frá Reykjanesbæ hefur ekki unnið fjóra deildarleiki í röð á móti nágrönnum sínum síðan í nóvember 2009.

Keflavík hefur unnið þrjá síðustu deildarleiki liðanna þar af fjögurra stiga sigur í fyrri leik liðanna í Njarðvík í desember. Keflavík vann 6 og 7 stiga sigra í deildarleikjum liðanna á síðasta tímabili.

Njarðvíkingar unnu Keflvíkinga síðast í deildinni 22. janúar 2016 en í þeim leik skoraði Haukur Helgi Pálsson 24 stig, tók 12 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Deildarleikir Njarðvíkur og Keflavíkur síðasta áratuginn

2017-18

3. desember 2017 - Keflavík vann 4 stiga sigur í Njarðvík (85-81)

2016-17 (Keflavík 4 stig - Njarðvík 0 stig)

5. janúar 2017 - Keflavík vann 7 stiga sigur í Keflavík (80-73)

7. október 2016 - Keflavík vann 6 stiga sigur í Njarðvík (88-82)

2015-16 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

22. janúar 2016 - Njarðvík vann 6 stiga sigur í Keflavík (92-86)

23. október 2015 - Keflavík vann 10 stiga sigur í Njarðvík (94-84)

2014-15 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

5. febrúar 2015 - Njarðvík vann 10 stiga sigur í Keflavík (100-90)

10. nóvember 2014 - Keflavík vann 12 stiga sigur í Njarðvík (86-74)

2013-14 (Keflavík 4 stig - Njarðvík 0 stig)

27. janúar 2014 - Keflavík vann 21 stigs sigur í Keflavík (105-84)

28. október 2013 - Keflavík vann 3 stiga sigur í Njarðvík (88-85)

2012-13 (Njarðvík 4 stig - Keflavík 0 stig)

14. mars 2013 - Njarðvík vann 6 stiga sigur í Njarðvík (100-94)

13. desember 2012 - Njarðvík vann 1 stigs sigur í Keflavík (92-91)

2011-12 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

8. mars 2012 - Njarðvík vann 2 stiga sigur í Njarðvík (95-93)

8. desember 2011 - Keflavík vann 20 stiga sigur í Keflavík (92-72)

2010-11 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

24. febrúar 2011 - Njarðvík vann 2 stiga sigur í Njarðvík (104-102)

22. nóvember 2010 - Keflavík vann 6 stiga sigur í Keflavík (78-72)

2009-10 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

11. mars 2010 - Keflavík vann 13 stiga sigur í Keflavík (82-69)

30. nóvember 2009 - Njarðvík vann 13 stiga sigur í Njarðvík (76-63)

2008-09 (Njarðvík 4 stig - Keflavík 0 stig)

2. mars 2009 - Njarðvík vann 10 stiga sigur í Keflavík (83-73)

30. nóvember 2008 - Njarðvík vann 2 stiga sigur í Njarðvík (77-75)

2007-08 (Keflavík 2 stig - Njarðvík 2 stig)

27. janúar 2008 - Njarðvík vann 13 stiga sigur í Keflavík (88-75)

28. október 2007 - Keflavík vann 15 stiga sigur í Njarðvík (78-63)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×