Glamour

Sakar Saint Laurent um að herma eftir Kanye West

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Kim Kardashian var ekkert að skafa ofan af hlutunum þegar hún sendi tískuhúsinu Saint Laurent pillu á Instagram í kjölfarið á sýningu þeirra á tískuvikunni í París. 

Fyrst setti hún inn mynd af tískupalli Saint Laurent og skrifaði "cute ysl" en svo í kjölfarið komu tvær myndir af sviðinu hjá Kanye West á Pablo túr hans í fyrra. Hún þurfti ekki að segja meira þar sem líkindin á milli eru augljós - og Kardashian var greinilega ekki sátt. 

Það tók ekki langan tíma fyrir aðdáendur hennar að setja myndirnar hlið við hlið á Twitter. 

Hvað segið þið - er ástæða fyrir Kardashian West fjölskylduna á brjálast?

Sýning Saint Laurent í París í vikunni.
Sviðið á Pablo túr Kanye West.





×