Fótbolti

Sara Björk aftur í hópi bestu knattspyrnukvenna heims

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði íslenska landsliðsins.
Sara Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði íslenska landsliðsins. Vísir/Getty
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og leikmaður þýsku meistaranna í VfL Wolfsburg er áfram ein af bestu knattspyrnukonum heims.

Sara Björk er ein af fimmtán sem Alþjóðaleikmannasamtökin, FIFPro, völdu sem bestu miðjumenn í heimi en alls voru 55 leikmenn tilnefndar úr hópi markvarða, varnarmanna, miðjumanna og sóknarmanna.







Sara Björk var líka í hópi þeirra fimmtán bestu í fyrra en hún átti mjög flott tímabil með VfL Wolfsburg sem vann tvöfalt árið 2017.

Sara er ein af 26 leikmönnum sem eru í þessum góða hópi annað árið í röð en 29 leikmenn eru þarna í fyrsta sinn.

Meira en 4100 leikmenn frá 45 löndum tóku þátt í kosningunni í ár og þar á meðal voru leikmenn úr Pepsi deild kvenna á Íslandi. Allir kusu einn markmann, fjóra varnarmenn, þrjá miðjumenn og þrjá sóknarmenn í sitt lið.

Íslenski landsliðsfyrirliðinn sinn tók stórt stökk með því að fara frá Svíþjóð til Þýskalands en hefur blómstrað og verið fastamaður á miðju Wolfsburg síðan að hún kom. Sara framlengdi nýverið samning sinn við félagið til ársins 2020.

Sara Björk er ein af sex leikmönnum Wolfsburg sem eru tilnefndar. Liðsfélagar hennar sem eru líka tilnefndar eru markvörðurinn Almuth Schult,  varnarmennirnir Nilla Fischer og Babett Peter og sóknarmennirnir Pernille Harder og Ewa Pajor.

FIFPro mun síðan tikynna hvaða 11 leikmenn af þessum 55 komust í úrvalslið ársins en það verður tilkynnt í næstu viku.



Hér fyrir neðan er allur hópurinn:

Markverðir:

Katarzyna Kiedrzynek (Pólland - Paris Saint-Germain)

Hedvig Lindahl (Svíþjóð - Chelsea FC)

Sandra Paños (Spánn - FC Barcelona)

Andreea Părăluță (Rúmenía - Atlético Madrid)

Almuth Schult (Þýskaland - VfL Wolfsburg)

Varnarmenn

Millie Bright (England - Chelsea FC)

Lucy Bronze (England - Olympique Lyonnais)

Kadeisha Buchanan (Kanada - Ol. Lyonnais)

Anouk Dekker (Holland - Montpellier)

Kristin Demann (þýskaland - FC Bayern München)

Nilla Fischer (Svíþjóð - VfL Wolfsburg)

Natalia Gaitán (Kólumbia - Valencia CF)

Stephanie Houghton (England - Man City, photo)

Tuija Hyyrynen (Finnland - Juventus FC)

Alanna Kennedy (Ástralia - Melbourne City FC)

Saki Kumagai (Japan - Olympique Lyonnais)

Ashley Lawrence (Kanada - Paris Saint-Germain)

Elena Linari (Ítalía - ACF Fiorentina FC)

Amel Majri (Frakkland - Olympique Lyonnais)

Irene Paredes (Spánn - Paris Saint-Germain)

Babett Peter (Þýskaland - VfL Wolfsburg)

Wendie Renard (Frakkland - Olympique Lyonnais)

Ali Riley (Nýja Sjáland - FC Rosengård)

Line Røddik Hansen (Danmörk - FC Barcelona)

Sandra Žigić (Króatía - FF USV Jena)

Miðjumenn

Camille Abily (Frakkland - Olympique Lyonnais)

Karen Carney (England - Chelsea FC)

Sara Däbritz (Þýskaland - FC Bayern München)

Daniëlle van de Donk (Holland - Arsenal FC)

Jackie Groenen (Holland - 1. FFC Frankfurt)

Sara Björk Gunnarsdóttir (Ísland - VfL Wolfsburg)

Amandine Henry (Frakkland - Olympique Lyonnais)

Carli Lloyd (Bandaríkin- Sky Blue FC, photo)

Victoria Losada (Spánn - FC Barcelona)

Dzsenifer Marozsán (Þýskaland - Ol. Lyonnais)

Silvia Meseguer (Spánn - Atlético Madrid)

Alice Parisi (Ítalía - ACF Fiorentina FC)

Caroline Seger (Svíþjóð - FC Rosengård)

Marta Vieira da Silva (Brasilía - Orlando Pride)

Caroline Weir (Skotland - Liverpool FC)

Framherjar

Barbara Bonansea (Ítalía - Juventus FC)

Deyna Castellanos (Venezuela - FSU)

Pernille Harder (Danmörk - VfL Wolfsburg)

Ada Hegerberg (Noregur - Olympique Lyonnais)

Jennifer Hermoso (Spánn - Paris Saint-Germain)

Samantha Kerr (Ástralia - Perth Glory)

Eugénie Le Sommer (Frakkland - Ol. Lyonnais, photo)

Lieke Martens (Holland - FC Barcelona)

Vivianne Miedema (Holland - Arsenal FC)

Alex Morgan (Bandaríkin - Orlando Pride)

Nadia Nadim (Danmörk - Manchester City)

Ewa Pajor (Pólland - VfL Wolfsburg)

Laura Rus (Rúmenía - Apollon FC)

Shanice van de Sanden (Holland - Lyonnais)

Jodie Taylor (England - Melbourne City)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×