Fótbolti

Rúrik á skotskónum í Þýskalandi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúrik í búningi Sandhausen
Rúrik í búningi Sandhausen vísir/getty
Rúrik Gíslason skoraði eina mark Sandhausen þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Erzgebirge Aue í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Gestirnir frá Aue komust yfir á 54.mínútu með marki Pascal Köpke en Rúrik jafnaði fyrir heimamenn á 69.mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki en Rúrik lék allar 90 mínúturnar.

Svekkjandi niðurstaða fyrir Rúrik og félaga sem þurfa á öllum stigum að halda í baráttunni um umspilssæti á meðan Aue er í bullandi fallbaráttu. Sandhausen í 5.sæti deildarinnar, fjórum stigum frá þriðja sæti sem gefur sæti í umspili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×