Fótbolti

Albert fékk ekki tækifærið í sigri PSV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Vísir/Getty
Albert Guðmundsson var allan leikinn á bekknum þegar PSV vann sigur á Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni í dag, 3-0.

Fyrsta mark PSV var sjálfsmark gestanna en Luuk de Jong og Steven Bergwijjn skoruðu hin mörk PSV sem er á toppi deildarinnar með tíu stiga forystu á næsta lið, Ajax.

Albert hefur lagt upp þrjú mörk fyrir tímabilinu fyrir PSV en ekki fengið tækifæri með liðinu síðan 10. febrúar. Hann hefur þó verið fastamaður í hóp á tímabilinu.

Hann hefur þó verið öflugur með varaliði PSV sem leikur í hollensku B-deildinni. Þar hefur hann skorað sjö mörk og lagt upp fimm í alls tíu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×