Körfubolti

Körfuboltakvöld: Línurit Martins er alltaf á uppleið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Martin Hermannsson í íslenska landsliðsbúningnum.
Martin Hermannsson í íslenska landsliðsbúningnum. Vísir/Bára
Martin Hermannsson sló í gegn í leikjum Íslands í undankeppni HM 2019 um liðna helgi, í sigrinum Íslands á bæði Finnlandi og Tékklandi. Hann var til umræðu í framlengingunni í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

„Það kemur næstum því á óvart hversu frábær drengurinn er,“ sagði Kristinn Geir Friðriksson, sérfræðingur í Körfuboltakvöldi um frammistöðu Martins.

„Hann er okkar langbesti leikmaður í dag. Eins og ég sé þetta í dag þá sé ég fyrir mér að hann komist í topplið í Evrópu,“ sagði Kristinn og Teitur Örlygsson tók í svipaðan streng.

„Hann hefur verið frábær allan sinn feril, síðan hann fór frá KR. Hvar endar þetta? Línuritið er alltaf upp á við. Það verður æðislegt að fylgjast með honum.“

Sjáðu framlenginguna hér fyrir neðan en þar var margt fleira til umræðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×