Innlent

Hagsmunasamtök heimilanna höfða mál vegna verðtryggðra neytendalána

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hagsmunasamtökin segja að markmið þeirra með þessum málarekstri sé að ná fram fordæmisgefandi dómi.
Hagsmunasamtökin segja að markmið þeirra með þessum málarekstri sé að ná fram fordæmisgefandi dómi. Vísir/Vilhelm
Skaðabótamál hefur verið höfðað vegna verðtryggðra neytendalána og vanrækslu á upplýsingaskyldu fjármálastofnana um kostnað vegna verðtryggingar. Hagsmunasamtök heimilanna segir sérstöðu málsins felast í því að á hvorn veginn sem málið fer verði niðurstaðan samtökunum í vil.

„Aðeins þarf að fá úr því skorið hvort innleiðing Alþingis á þeim neytendarétti sem um ræðir í málinu hafi verið röng sem gerir Alþingi ábyrgt eða þá að dómur Hæstaréttar Íslands í máli nr. 243/2015 hafi verið rangur sem gerir Hæstarétt og dómskerfið ábyrgt,“ útskýra samtökin í tilkynningu til fjölmiðla nú í morgun.

Samtökin segja að málið sé höfðað vegna hins fyrrnefnda dóms Hæstaréttar Íslands. Þar hafi reynt á afleiðingar þess að við „lántöku höfðu ekki verið veittar fullnægjandi upplýsingar um áhrif verðtryggingar á lánskostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar samkvæmt lögum um neytendalán,“ segja Hagsmunasamtökin.

„Hvort sem um er að ræða ranga túlkun Hæstaréttar eða að íslensk lög hafi verið í beinni andstöðu við tilskipun EES um neytendalán, eru slík brot gegn EES reglum almennt skaðabótaskyld. Hefðu þær reglur sem um ræðir komist rétt til framkvæmda hefði átt að vera óheimilt að innheimta þann kostnað sem ekki var réttilega upplýst um,“ segja samtökin.

Tjón lántakenda er bein afleiðing þess að þeir hafi ekki notið þeirrar verndar sem í þessu átti að felast þegar á reyndi. Fyrir dómi er því krafist skaðabóta sem nema öllum aukakostnaði sem greiddur hefur verið vegna verðtryggingar viðkomandi láns.“

Hagsmunasamtökin segja að markmið þeirra með þessum málarekstri sé að ná fram fordæmisgefandi dómi um fulla leiðréttingu ólögmætrar verðtryggingar. Þau telja að allar líkur séu á því að fordæmisgefandi dómur um þetta úrlausnarefni geti haft verulega þýðingu fyrir neytendur sem tóku almenn neytendalán frá og með árinu 1994 og þar með talin húsnæðislán frá og með 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×