Lífið

Aron Einar og Kristbjörg eiga von á sínu öðru barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristbjörg og Aron geisluðu í Hallgrímskirkju þegar þau giftu sig síðasta sumar.
Kristbjörg og Aron geisluðu í Hallgrímskirkju þegar þau giftu sig síðasta sumar. Vísir / Andri Marinó
„Það er mér mikil ánægja að tilkynna að ég og Kristbjörg eigum von á öðrum fjölskyldumeðlimi,“ segir landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, en þau Kristbjörg Jónasdóttir, afrekskona í fitness, eiga von á sínu öðru barni.

Frá þessu greinir Aron Einar á Instagram og birtir í leiðinni myndir af Óliver, syni þeirra. Á myndunum er Óliver í hvítum bol með sónarmynd framan á. Fyrir ofan myndina stendur:

„Ég er að verða stóribróðir.“

„Óliver getur ekki beðið eftir því að hitta hann eða hana eins og sjá má á þessum myndum,“ skrifar Aron Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×