Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Tuttugu og sex innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í febrúar, flest í Garðabæ, Grafarvogi og Kópavogi. Þjófarnir sækjast helst eftir skartgripum enda verð á gulli í hámarki. Fjallað verður um málið í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Einnig verður rætt við forseta Íslands sem ætlar að klæðast röndóttu í mars til að berjast gegn krabbameini og hvetja til vitundarvakningar um sjúkdóminn.

Við skoðum einnig nýja Boeing 737 flugvél Icelandair sem kom til landsins nú um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×