Fótbolti

Albert í byrjunarliði varaliðsins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Vísir/Getty
Albert Guðmundsson var í byrjunarliðinu hjá varaliði PSV, Jong PSV, sem sótti Waalwijk heim í kvöld.

Albert var tekinn af velli fyrir Matthias Verreth á 69. mínútu aðeins tveimur mínútum eftir að Mohamed Mezghrani hafði jafnað fyrir Waalwijk.

Áður hafði Nikolai Laursen komið Jong PSV yfir strax á 15. mínútu leiksins, Johan Voskamp jafnaði á 59. mínútu en Laursen kom Jong PSV yfir strax aftur aðeins tveimur mínútum seinna.

Voskamp tryggði svo Waalwijk sigurinn með öðru marki sínu og þriðja marki heimamanna á 75. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×