Innlent

Flugfreyjufélagið og Wow undirrituðu nýjan samning í nótt

Birgir Olgeirsson skrifar
Kjör fyrstu flugfreyja eru sögð batna umtalsvert í þessum nýja samningi.
Kjör fyrstu flugfreyja eru sögð batna umtalsvert í þessum nýja samningi. Wow air
Flugfreyjufélag Íslands og Wow Air ehf. undirrituðu nýja kjarasamninga í nótt. Samningurinn mun gilda til 29. febrúar 2020 verði hann samþykktur en hann verður borinn undir atkvæðagreiðslu á næstu dögum. Flugfreyjur hafa í tvígang fellt kjarasamning við Wow Air, nú síðast í vikunni en þar áður í desember í fyrra. 

Orri Þrastarson, varaformaður Flugfreyjufélags Íslands, segir helsta muninn á þessum samningi og þeim tveimur sem voru felldir að kjör fyrstu flugfreyja, þeirra sem eru yfir hverri flugfreyjuáhöfn, batni umtalsvert. 

Orri segir að atkvæðagreiðslu um samninginn ljúki 28. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×