Real fjórtán stigum á eftir Barcelona eftir tap í uppbótartíma

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bale í leiknum í kvöld, en Wales-verjinn var tekinn af velli í síðari hálfleik.
Bale í leiknum í kvöld, en Wales-verjinn var tekinn af velli í síðari hálfleik. vísir/getty
Espanyol stal stigunum þremur gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, en sigurmark Espanyol kom í uppbótartíma, 1-0.

Real var meira með boltann og hættulegra liðið í leiknum, en þrátt fyrir að vera með hreðjartök á leiknum náðu Madrídingar ekki að koma boltanum í markið. Það var svo Gerard Moreno sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma .

Cristiano Ronaldo var ekki með Real í kvöld, en í næstu viku spilar Real við PSG í Meistaradeildinni þar sem liðið er með pálmann í höndunum eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum. Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, hvildi afar marga lykilmenn fyrir leikinn í næstu viku.

Real er nú í þriðja sætinu fjórtán skigum á eftir Barcelona sem á einnig leik til góða, en Valencia getur skotist upp fyrir Real með sigri á Bilbao á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira