Lífið

#12stig: Fylgstu með viðbrögðum tístara við söngvakeppninni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er fríður flokkur listamanna sem tekur þátt að þessu sinni.
Það er fríður flokkur listamanna sem tekur þátt að þessu sinni.
Fyrri undankeppni Söngvakeppninnar fer fram í Háskólabíó í kvöld. Þar bítast þrjú lög á um að komast í úrslitakvöld keppninnar.

Eurovision-áhugafólk er vant að kasta fram ýmsum pælingum og dómum um frammistöðu keppenda, kynna og jafnvel áhorfenda í tengslum við keppnina og er ekki von á öðru en að umræðan undir umræðumerkinu #12stig verði lífleg í kvöld eins og undanúrslitakvöldin tvö.

Vísir mun fylgjast grannt með bæði gangi mála á sjálfu og þú getur fylgst með lifandi straumi af umræðunni í boxinu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×