Innlent

Skjálfti á Reykjanestá í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Reykjanesviti.
Reykjanesviti. Vísir/gva
Skjálfti 3,3 að stærð var á Reykjanestá, um tólf kílómetrum vestur af Grindavík, um klukkan 1:15 í nótt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Skjálftans varð vart í byggð, meðal annars í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu.

Nokkrir minni skjálftar fylgdu í kjölfar skjálftans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×