Fótbolti

Aron Jóhanns: Ég væri líka alveg til í að spila í markinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Jóhannsson fagnar marki sínu á dögunum.
Aron Jóhannsson fagnar marki sínu á dögunum. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson er aftur kominn inn í myndina hjá Werder Bremen eftir langa þrautargöngu vegna meiðsla og hann fær hrós frá þjálfara liðsins í nýju viðtali við Kicker.

Aron valdi bandaríska landsliðið yfir það íslenska árið 2014 og hann fær vonandi tækifæri í vor að vinna sér aftur sæti í bandaríska landsliðshópnum.

Aron hefur spilað þrjá síðustu deildarleiki Werder Bremen, fleiri mínútur í hverjum leik, og var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í 3-1 sigri á Wolfsburg um síðustu helgi. Aron skoraði í leiknum á undan þegar Werder Bremen vann 2-1 útisigur á Schalke og hann skoraði líka í bikarleik á móti Bayer Leverkusen.

„Hann fór í gegnum langan öldudal vegna meiðslanna en heldur alltaf ótrauður áfram, er jákvæður, kvartar aldrei og spilar sinn leik,“ sagði Florian Kohfeldt, þjálfari Werder Bremen um Aron.

Aron hefur verið að spila hægra megin í þriggja manna framlínu Werder Bremen en með honum í fremstu í línu í síðasta leik voru þeir Florian Kainz og Max Kruse. Florian Kainz skoraði tvö mörk og Kruse átti stoðsendinguna á hann í seinna markinu.

Aron spilaði fyrstu 65 mínútur leiksins sem er það mesta sem hann hefur spilað í einum leik í deildinni á tímabilinu.

„Mér er sama hvar ég spila á vellinum því það mikilvægasta er að ég fái að spila. Ég væri líka alveg til í að spila í markinu en ég held samt að Pavlenka sé betri kostur þar núna,“ sagði Aron léttur við Kicker.

 „Eins og er þá skiptir það ekki máli hver spilar hjá okkur. Þetta eru allt góðir leikmenn og okkur kemur vel saman inn á vellinum. Allir sóknarmenn Werder Bremen eru líka sveigjanlegir þegar kemur að stöðu á vellinum. Það er mikil samkeppni um stöðurnar sem er erfitt fyrir þjálfarann en gott fyrir liðið,“ sagði Aron.

Næsti leikur Werder Bremen er á útivelli á móti Freiburg á morgun og góðar líkur eru á því að Aron haldi sæti sínu í byrjunarliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×