Bílar

Nissan hefur selt 3.000.000 Qashqai

Finnur Thorlacius skrifar
Nissan Qashqai númer 3.000.000.
Nissan Qashqai númer 3.000.000.
Á þeim tíu árum sem sportjeppinn Nissan Qashqai hefur verið á markaði í Evrópu hafa þrjár milljónir slíkra bíla verið framleiddar í verksmiðjunni í Sunderland í Bretlandi samkvæmt uppgjöri fyrir árið 2017. Síðasta ár var einstaklega gifturíkt fyrir Qashqai sem hefur verið mest seldi sportjeppinn í Evrópu allar götur frá því að hann kom á markað 2007, enda unnið til meira en áttatíu verðlauna, þar af í nítján löndum sem bíll ársins.

Verksmiðja Nissan í Sunderland framleiddi 762.574 bíla á árinu, bæði fyrir Nissan og Datsun og átti Qashqai stærstan þátt í framleiðslumetinu en alls runnu 265.520 eintök af sportjeppanum af færibandinu. Þannig fóru 3,8% fleiri bílar í heild á markaði frá Sunderland á síðasta ári og 1,2% fleiri Qashqai og var markaðshlutdeild Nissan í Evrópu 3,7% á árinu.

Einkum var árangur Nissan góður á Spáni þar sem salan jókst um 9,4% og í Rússlandi þar sem salan jókst um 12,4%. Einnig bætti Frakklandsmarkaður við sig þremur prósentustigum og hefur sala Nissan í Frakklandi aldrei verið meiri en um þessar mundir. 

Paul Willcox, forstjóri Nissan Europe, fagnar góðu gengi fyrirtækisins og Qashqai í Evrópu og bindur miklar vonir við yfirstandandi ár, ekki síst vegna nýrrar kynslóðar Leaf, en að jafnaði berast Nissan sex pantanir í nýja bílinn á hverri einustu klukkustund í Evrópu. Willcox á von á því að Nissan Europe setji nýtt sölumet á þessu ári og að alls fari heildarsalan í 20,2 milljónir bíla, að Rússlandsmarkaði meðtöldum.

Hjá Nissan í Sunderland starfa um sjö þúsund manns við framleiðslu á Qashqai, Juke og Leaf auk Infiniti Q30 og QX30, en einn af hverjum þremur bílum sem framleiddir eru í Bretlandi er frá Nissan. Um 80% framleiðslunnar í Sunderland fer á erlenda markaði í 130 löndum. Auk starfsstöðvar í Sunderland vinna 65 manns í hönnunarstöð Nissan í Paddington í Lundúnum, um eitt þúsund manns hjá tæknimiðstöð fyrirtækisins í Cranfield og um 190 manns við sölu- og markaðsmál í Rickmansworth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×