Lífið

Sjáðu Super Bowl hálfleikssýningu Justin Timberlake

Stefán Árni Pálsson skrifar
Timberlake kom fram í hálfleik í gærkvöldi.
Timberlake kom fram í hálfleik í gærkvöldi.

Philadelphia Eagles varð í nótt NFL-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 41-33 sigur á fráfarandi meisturum New England Patriots í Super Bowl, úrslitaleik ameríska fótboltans, í Minneapolis í nótt.

Flestir spekingar bjuggust fyrir leikinn við sjötta sigri Patriots á átján árum en Örnunum frá Philadelphia tókst loksins að vinna sinn fyrsta titil.

Einn af hápunktunum í bandarísku sjónvarpi á ári hverju er hálfleikssýningin er í leiknum um Ofurskálina. Þá stígur vanalega stórstjarna á heimsmælikvarða á sviðið og var enginn undantekning á að þessu sinni. Sjálfur Justin Timberlake kom fram aftur eftir fjórtán ára hlé.

Timberlake steig á stokk ásamt Janet Jackson í einni frægustu hálfleikssýningu sögunnar árið 2004.

Það muna eflaust margir eftir atvikinu þegar Timberlake reif óvart búning Jackson með þeim afleiðingum að annað brjóst hennar datt út og heimsbyggðin horfði á.

Í gærkvöldi var kappinn mættur aftur og tók alla sína helstu smelli á stærsta sviðinu. Hér að neðan má sjá hálfleikssýningu Timberlake í heild sinni en hann birti hana sjálfur á YouTube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×