Lífið

Verða næsta mánuðinn í tökum á Suður-ameríska drauminum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auddi og Steindi verða aftur saman í liði.
Auddi og Steindi verða aftur saman í liði.
Þeir Auðunn Blöndal, Steindi Jr., Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon eru lagðir af stað í ferðaleg og verða næsta mánuðinn í Suður-Ameríku við tökur á Suður-ameríska drauminum.

Um er að ræða einskonar þætti sem byggjast upp á stigasöfnunarkeppni milli Audda og Steinda og síðan Sveppa og Pétri.

Þættirnir hófu göngu sína fyrir nokkrum árum þegar Ameríski-draumurinn var tekinn upp. Í framhaldinu af því kom Evrópski-draumurinn og síðan í fyrra kom út Asíski-draumurinn.

Fjórmenningarnir verða á dagskrá á Stöð 2.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×