Lífið

Hvernig eiga Íslendingar sem hittast í útlöndum að haga sér?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það hafa allir hitt annan Íslending í útlöndum.
Það hafa allir hitt annan Íslending í útlöndum.
Það kannast eflaust margir við það að hitta annan Íslending í útlöndum, og að fljótlega fari umræðan að snúast um þá staðreynd að báðir aðilar séu frá Íslandi.

En hvernig á maður að haga sér þegar maður hittir annan Íslending í útlöndum? Það var tekið vel á þessu máli í þættinum Hversdagsreglur á Stöð 2 á fimmtudagskvöldið.

Niðurstaða Hversdagsregluráðsins er að Íslendingum sem þekkjast ekki en hittast í útlöndum beri að heilsast. Undantekning eru vinsælustu áfangastaðir Íslendinga, s.s. Kaupmannahöfn, London og Benedorm.

Hér að neðan má sjá atriðið frá því í síðasta þætti.


Tengdar fréttir

Hver eignast áfengið sem verður eftir í partýi?

Hversdagsreglur er nýr sjónvarpsþáttur sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi en í þáttunum eru settar reglur um flókin álitaefni sem koma ítrekað upp í samskiptum fólks og ekki er alveg augljóst hvernig leysa skuli úr.

Hversdagsreglur: Valda tvíburar ruglingshættu?

Þriðji þáttur af Hversdagsreglum var á dagskrà í gær en í þáttunum er fjallað um hvernig eigi að leysa úr hversdagslegum ágreiningsefnum og settar reglur í þá veru.

Hversdagsreglur: Handaband, knús eða koss á kinn?

Annar þáttur af Hversdagsreglum fór í loftið í gær en í þessum skemmtilegu þáttum, sem eru sýndir öll fimmtudagskvöld á Stöð 2, er fjallað um þau fjölmörgu álitaefni sem við stöndum frammi fyrir daglega og lög og reglugerðir leysa ekki fyrir okkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×