Enski boltinn

Maradona í Tottenham-treyju sem Kane gaf honum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mynd af Twitter-síðu Osvaldo.
Mynd af Twitter-síðu Osvaldo. vísir/twitter
Argentínumaðurinn Osvaldo Ardiles, fyrrum leikmaður og stjóri Tottenham, en einnig heimsmeistari með Argentínu birti í kvöld mynd af Diego Maradona í búningi Tottenham.

Þeir Osvaldo og Maradona voru að horfa á leik Tottenham og Liverpool saman í gærkvöldi sem endaði með bráðfjörugu 2-2 jafntefli eftir mikla dramatík undir lok leiksins.

Maradona var í treyju frá Harry Kane, en samkvæmt Twitter-síðu Osvaldo gaf Kane Maradona treyjuna eftir fyrri leik Tottenham og Liverpool á Wembley í vetur.

Hér að neðan má sjá Twitter Osvaldo ásamt mynd af Maradona í treyjunni, en þessi goðsögn tekur sig vel út í búningnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×