Lífið

Þrjóskasta barn heims neitar að viðurkenna að laukur sé ekki epli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta er víst ekki epli.
Þetta er víst ekki epli.
Þýsk kona að nafni Gesa Croonen deilir einu allra vinsælasta myndbandi heims á Facebook-síðu sinni í síðustu viku.

Þar má sjá dóttir hennar borða lauk. Forsaga málsins er sú að stelpan heldur því staðfastlega fram við móður sína að laukurinn sé epli.

Hún neitar að viðurkenna að manna sín hafi rétt fyrir sér og ákveður að borða laukinn eins og epli.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli og þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á þetta myndband 66 milljón sinnum.

Myndbandið má sjá hér að neðan. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×