Fótbolti

Coutinho: Sérstök stund að skora fyrsta markið fyrir Barcelona

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Philippe Coutinho skoraði í gær.
Philippe Coutinho skoraði í gær. vísir/getty
Philippe Coutinho skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona í gærkvöldi eftir söluna frá Liverpool.

Brassinn skoraði fyrra mark Börsunga í 2-0 sigri á Valencia í seinni leik liðanna í undanúrslitum spænska Konungsbikarsins. Barcelona vann einvígið samanlagt, 3-0, og er komið í úrslitaleikinn fimmta árið í röð.

Coutinho, sem kostaði Barca 146 milljónir punda, skoraði eftir aðeins fjórar mínútur í seinni hálfleik, en hann kom inn á sem varamaður í hálfleiknum. Þetta var fimmti leikur hans fyrir Barca.

„Ég er ánægður með að hafa skorað mitt fyrsta mark fyrir Barca og hjálpað liðinu í úrslitaleikinn. Þetta er sérstök stund,“ sagði Coutinho eftir leikinn.

Markið skoraði Brasilíumaðurinn eftir stoðsendingu frá Luis Suárez sem einmitt fór líka til Börsunga frá Liverpool með látum. Mark Coutinho var númer átta á tímabilinu hjá honum fyrir bæði Liverpool og Barcelona.

Börsungar mæta Sevilla í úrslitaleik bikarsins 21. apríl en Barcelona er búið að vinna bikarinn þrjú ár í röð og 30 sinnum í heildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×