Brotin eiga að hafa verið framin í húsnæði á vegum Barnaverndar Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 30. janúar 2018 19:00
Brotin sem starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur er grunaður um eiga að hafa átt sér stað á stuðningsheimili á vegum borgarinnar þar sem önnur ungmenni dvöldu einnig. Framkvæmdastjóri barnaverndar segir málið grafalvarlegt. Þá viðurkennir lögreglan mistök í málinu.Kæra var lögð fram á hendur manninum, sem er 43 ára gamall, í ágúst síðastliðnum fyrir að hafa frá 2004 til 2010 brotið gróflega gegn pilti sem þá var 8 til 14 ára og meðal annars byrlað honum svefnlyfi. Brotin eiga að hafa verið framin aðra hverja helgi þegar pilturinn var í umsjá mannsins. Maðurinn var fenginn af foreldrum hans til að veita honum stuðning en hann hefur starfað með börnum fyrir Reykjavíkurborg í um 20 ár. Þá leikur grunur á að maðurinn hafi einnig brotið gegn tveimur systkinum piltsins. Þrátt fyrir að kæra hafi verið lögð fram á hendur manninum í ágúst var hann ekki handtekinn fyrr en nú í janúar og hefur maðurinn því síðustu fimm mánuði áfram sótt starf sitt sem umsjónaraðili á vistheimili fyrir unglinga á vegum Reykjavíkurborgar. Athygli vekur að í kærunni stendur að kunnugt sé um að kærði hafi starfað fyrir barnaverndaryfirvöld og meðal annars rekið heimili fyrir börn.Árni Þór Sigmundsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/EyþórGerðu mistök Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir að ekki sé sérstaklega tiltekið í kærunni að hann starfi enn með börnum. Það hafi ekki komið í ljós fyrr en hafist var handa við að rannsaka brotið í janúar. Þá hafi meintur gerandi strax verið handtekinn og barnaverndaryfirvöld umsvifalaust verið látin vita. „Allir sem að málinu komu töldu að það hefði verið átt við þá en ekki núna. Við áttuðum okkur ekki á því að hann væri núverandi starfsmaður,“ segir Árni Þór. Voru það mistök? „Það er yfirsjón, já,“ segir Árni Þór og bætir við að næstu daga verði unnið hörðum höndum að því að kanna hvað hafi farið úrskeiðis. „Hér hefur verið gríðarlegur erill síðasta árið og þegar þannig ástand er þá aukast líkurnar á svona,“ segir Árni sem hefði gjarnan kosið að málið hefði farið öðruvísi og önnur vinnubrögð hefðu verið höfð í hávegum. „Þá ekki síst að í upphafi hverrar rannsóknar sé leitast við að finna hvar viðkomandi starfar.“Brotaþoli segist hafa látið lögreglu vita af starfi mannsins Nú hefur komið í ljós að kæra piltsins frá því í ágúst síðastliðnum er ekki sú fyrsta sem lögð hefur verið fram á hendur manninum. Hann var einnig kærður til lögreglu árið 2013 fyrir kynferðisbrot gegn barni. Samkvæmt þeirri kæru eiga þau brot að hafa átt sér stað á tímabilinu 2000 til 2006 gegn pilti tengdur manninum fjölskylduböndum. Árni Þór segir að brotin hafi verið fyrnd og málið því látið falla niður. Í gögnum málsins sé hvergi að finna upplýsingar um að maðurinn hafi starfað með börnum. Brotaþoli í málinu, sem nú er fullorðin, fullyrðir aftur á móti í samtali við fréttastofu að hann hafi sagt frá því við skýrslutöku að maðurinn ynni með börnum.Það kemur svo önnur kæra 2017 hefði ekki verið eðlilegt að það hringi viðvörunarbjöllur? „Jú það er rétt. Þetta verður skoðað og já það er bara þannig,“ segir Árni Þór.Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, forstjóri Barnaverndar Reykjavíkur.Mynd/StillaEnn sem komið er er maðurinn ekki grunaður um brot gegn þeim börnum sem honum hefur verið trúað fyrir starfa sinna vegna. Hins vegar eiga brotin á bak við kærurnar tvær að hafa átt sér stað á stuðningsheimili á vegum borgarinnar þar sem önnur ungmenni dvöldu ásamt manninum.Brotin sögð hafa átt sér stað á sambýli borgarinnar „Þar bjó tilsjónaraðilinn með tveimur til þremur börnum í íbúð og var þeim til stuðnings í daglegu lífi. Mér skilst að kæran sé þannig að hann hafi átt að taka þetta barn inn á þetta tilsjónarsambýli sem hann starfaði á á þessum tíma og að brotin hafi átt aðeiga sér stað á þessu heimili,“ segir Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkjavíkur. Hún segir að í ljósi þessa sé málið enn alvarlegra. „Að starfsmaður sem er í þessu hlutverki gagnvart ungmennum sé grunaður um að taka átta ára gamalt barn inn á heimilið og brjóta gegn því.“
Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Starfsmaður barnaverndar hefur áður verið kærður fyrir kynferðisofbeldi Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisofbeldi gegn pilti og öðrum börnum var kærður fyrir kynferðisofbeldi árið 2013 en málið var fyrnt og látið niður falla. Samt sem áður tók fimm mánuði að hefja rannsókn á seinni kærunni sem barst lögreglu í ágúst síðastliðnum. 30. janúar 2018 12:19 Lögregla svaraði ekki tölvupóstum réttargæslumanns vegna kærunnar Tölvupóstar sem Vísir hefur undir höndum sýna að réttargæslumaður pilts sem kærði mann fyrir áralöng kynferðisbrot gegn sér reyndi ítrekað að fá upplýsingar um málið frá lögreglu. Tölvupóstunum var ekki svarað. 30. janúar 2018 14:32 Maður sem starfar með börnum hjá Reykjavíkurborg grunaður um kynferðisbrot gegn nokkrum börnum Kæran barst lögreglu í ágúst en maðurinn hefur unnið á skammtímaheimili fyrir unglinga þar til í síðustu viku. Maðurinn er grunaður um alvarleg og gróf kynferðisbrot og samkvæmt kæru í málinu að hafa notað svefnlyf við verknaðinn. 29. janúar 2018 19:00 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Sjá meira
Starfsmaður barnaverndar hefur áður verið kærður fyrir kynferðisofbeldi Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisofbeldi gegn pilti og öðrum börnum var kærður fyrir kynferðisofbeldi árið 2013 en málið var fyrnt og látið niður falla. Samt sem áður tók fimm mánuði að hefja rannsókn á seinni kærunni sem barst lögreglu í ágúst síðastliðnum. 30. janúar 2018 12:19
Lögregla svaraði ekki tölvupóstum réttargæslumanns vegna kærunnar Tölvupóstar sem Vísir hefur undir höndum sýna að réttargæslumaður pilts sem kærði mann fyrir áralöng kynferðisbrot gegn sér reyndi ítrekað að fá upplýsingar um málið frá lögreglu. Tölvupóstunum var ekki svarað. 30. janúar 2018 14:32
Maður sem starfar með börnum hjá Reykjavíkurborg grunaður um kynferðisbrot gegn nokkrum börnum Kæran barst lögreglu í ágúst en maðurinn hefur unnið á skammtímaheimili fyrir unglinga þar til í síðustu viku. Maðurinn er grunaður um alvarleg og gróf kynferðisbrot og samkvæmt kæru í málinu að hafa notað svefnlyf við verknaðinn. 29. janúar 2018 19:00