„Say Iceland“ sigurvegarar Hnakkaþonsins Þórdís Valsdóttir skrifar 21. janúar 2018 16:38 Sigurliðið í Hnakkaþoninu 2018. Aðsend mynd
Úrslit Hnakkaþons Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi voru kynnt í gær og bar vörumerkið „Say Iceland“ sigur úr bítum. Hnakkaþon er samkeppni fyrir upprennandi sérfræðinga í markaðsmálum, hugbúnaði, tækni og vörustjórnun. Í samkeppninni reyna nemendur Háskólans í Reykjavík að vinna að lausn verkefna sem tengjast íslenskum sjávarútvegi og í ár þurftu nemendur að finna leiðir til að auka sölu á sjófrystum ufsa til hótela og veitingahúsakeðja í Bandaríkjunum. Í vinningstillögunni er lagt til að lögð verði aukin áhersla á íslensk gæði, sjálfbærni og jafnt framboð allt árið um kring í markaðssetningu á ufsa á Bandaríkjamarkaði. Þá er lagt til að nýtt vörumerki „Say Iceland“ verði þróað og að aðstaða til fullvinnslu í Portland verði byggð upp þar sem ufsinn verði marineraður, reyktur eða hjúpaður raspi. Nái tillögur sigurligsins fram að ganga mun Brim hf. byggja upp eigið vörumerki undir nafninu „Say Iceland“ og selja fullunninn ufsa á nýja markaði á austurströnd Bandaríkjanna. Sigurliðið skipa fimm nemendur Háskólans í Reykjavík, þau Tinna Brá Sigurðardóttir, Sóley Sævarsdóttir Meyer, Serge Nengali Kumakamba, Yvonne Homoncik og Julia Robin de Niet. Liðið hlýtur að launum ferð á sjávarútvegssýninguna í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi. Í dómnefnd Hnakkaþons 2018 sátu: Björgólfur Jóhannson forstjóri Icelandair Group, Bylgja Hauksdóttir umboðsaðili North Coast Seafoods Ltd., Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips, Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri tengsla í HR, Karl Már Einarsson útgerðarstjóri Brims og Þorgeir Pálsson aðjúnkt við viðskiptadeild HR.
Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira