Lífið

Svala óþekkjanleg í nýjasta myndbandinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svala fer á kostum í myndbandinu.
Svala fer á kostum í myndbandinu.
Tvíeykið BLISSFUL gaf út lagið Find A Way í vikunni og nýtt tónlistarmyndband í leiðinni. Í Blissful eru hjónin Svala Björgvinsdóttir og Einar Egilsson og tóku þau eftirminnilega þátt í lokakeppni Eurovision í Úkraínu á síðasta ári.

Bráðlega kemur út smáskífa frá Blissful en sveitin kemur fram á aðalsviðinu á Sónar í Hörpu í mars.

Höfundar lags og texta eru Einar Egilsson, Svala Björgvinsdóttir, Amy Kuney og Lester Mendez.

Myndbandið er hið skemmtilegasta og er það að sjálfsögðu leikstýrt af Einari sjálfum en hann leikstýrir öllum tónlistarmyndböndum Blissful.

Hér að neðan má horfa á myndbandið við Find A Way.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×