Fótbolti

Sögulegt mark tryggði Barcelona áfram í bikarnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi heldur áfram að skrá sig í sögubækurnar
Lionel Messi heldur áfram að skrá sig í sögubækurnar vísir/getty
Lionel Messi tryggði Barcelona áfram í undanúrslit spænsku bikarkeppninnar þegar hann skoraði sögulegt mark á Nou Camp í kvöld.

Mark Messi var það seinna í 2-0 sigri Barcelona á Espanyol, en markið var mark númer 4000 sem leikmaður Barcelona skorar á heimavelli þeirra Nou Camp, frá því hann var tekinn í notkun árið 1957.

Luis Suarez hafði komið Barcelona yfir á 9. mínútu með skallamarki eftir fyrirgjöf Aleix Vidal.

Philippe Coutinho var á varamannabekknum í fyrsta skipti fyrir sitt nýja lið og hann fékk að spila tæpan hálftíma af leiknum, en honum var skipt inn á fyrir Andres Iniesta á 68. mínútu.

Espanyol vann fyrri leikinn 1-0 svo samtals vann Barcelona einvígið 2-1 og á enn möguleika á bikarmeistaratitlinum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×