Innlent

Minnihlutinn í Garðabæ íhugar sameiginlegt framboð

Birgir Olgeirsson skrifar
Minnihlutinn í Garðabæ ræddi sameiginlegt framboð fyrir síðustu kosningar en upp úr þeim viðræðum slitnaði á síðustu stundu.
Minnihlutinn í Garðabæ ræddi sameiginlegt framboð fyrir síðustu kosningar en upp úr þeim viðræðum slitnaði á síðustu stundu. Vísir
Flokkarnir sem skipa minnihluta í bæjarstjórn Garðabæjar íhuga nú sameiginlegt framboð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Flokkarnir sem um ræðir eru Björt framtíð sem er með tvo fulltrúa í bæjarstjórn, Samfylkingin sem á einn fulltrúa og og Listi fólksins í bænum sem á einn fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta með sjö bæjarfulltrúa.

Halldór J. Jörgensson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, segir sameiginlegt framboð flokkanna í minnihluta hafa verið rætt fyrir kosningarnar í vor, alveg eins og það var rætt fyrir síðustu kosningar.

Halldór Jörgensson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Garðabæ.
„Þetta var komið ansi langt skilst mér fyrir fjórum árum síðan en svo slitnaði upp úr því á síðustu stundu,“ segir Halldór. Hann segir viðræðurnar ekki komnar langt en fólk sé viljugt til að ræða saman og svo þurfi tíminn að leiða annað í ljós.

Garðabær hefur reynst ansi sterkt vígi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og segir Halldór flokkinn hafa vissulega verið við stjórnvölinn lengi þar í bæ. Hann tekur þó fram að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu búnir að vinna mikið starf en mögulega sé kominn tími á breytingar.

„Ég held að það sé mjög heilbrigt fyrir alla, bæði meirihlutann og Garðbæinga alla að skipta út allavega eitt kjörtímabil. Ég segi það náttúrlega hugmyndafræðilega séð, svo er annað að reyna að framkvæma það. Svo er hitt að geta mögulega styrkt minnihlutann. Í svona samstarfi getur minnihlutasamstarfið verið betra, við erum ekkert svo rosalega ósammála hér í Garðabæ, allir hér sem sitja í bæjarstjórn eru indælisfólk sem er sammála um flest mál en þetta snýst meira um hvernig á að vinna hlutina, ekki hvort,“ segir Halldór.

Aðspurður hvenær ákvörðun um samstarf flokkanna í minnihluta þyrfti að liggja fyrir segist hann ekki viss, en vissulega sé það betra ef það gerist fyrr en seinna.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 26. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×