Lífið

Hugh Grant á von á sínu fimmta barni á sjö árum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hugh Grant og Anna Eberstein á Golden Globe.
Hugh Grant og Anna Eberstein á Golden Globe. Vísir/getty
Leikarinn Hugh Grant og Anna Eberstein eiga von á barni og er um að ræða fimmta barn Grant á sjö árum.

Þetta er þriðja barn parsins saman og fyrir á Hugh Grant tvö börn. Þessi 57 ára leikari var tilnefndir til Bafta í vikunni fyrir hlutverk sitt í Paddington 2.

Grant eignaðist dóttir árið 2011 með konu að nafni Tinglan Hong. Annað barn Grant fæddist árið 2012 og kom þá sonur í heiminn.  Árið 2013 eignuðust Grant og Eberstein sitt fyrsta barn saman en þá fæddist Felix Grant.

Tveimur árum síðar kom í heiminn annað barn parsins. Núna eiga þau von á þriðja barninu sínu saman og fimmta barn breska leikarans.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×