Innlent

Leita að fimm íbúðum fyrir flóttafólk í Mosfellsbæ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Leitað er að fimm íbúðum fyrir flóttafólkið.
Leitað er að fimm íbúðum fyrir flóttafólkið. Vísir/GVA
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar leitar að fimm íbúðum í bænum fyrir tíu flóttamenn frá Úganda sem neyðst hafa til að flýja heimalandið vegna ofsókna. Hefur bæjarstjórnin gengið til samninga við velferðarráðuneytið um móttöku flóttafólksins.

Um er að ræða tíu einstaklinga í fimm fjölskyldum, þar af þrjú börn. Lögð er áhersla á að veita fólkinu heildstæða þjónustu sem stuðlar að öryggi og aðlögun hinna nýju íbúa með gildi bæjarfélagsins virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju að leiðarljósi að því er segir í tilkynningu frá bænum.

Stefnt er að komu fólksins í lok janúar eða byrjun febrúar. Af þessu tilefni óskar bæjarfélagið eftir að leigja fimm íbúðir, fjórar tveggja herbergja og eina fjögurra til fimm herbergja. Leigutíminn er tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×