Málar sig frá vandræðum Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir skrifar 13. janúar 2018 12:00 Ellý er staðráðin í að forðast gjaldþrot og selur málverkin sín upp í skuldir.
Hvernig á að titla konu eins og Ellý Ármanns? velti blaðamaður fyrir sér á leið til fundar við hana. Ellý Ármanns, nafn sem margir þekkja; fjölmiðlakona, spákona, þula, dægurstjarna og nú myndalistarmaður. En það er einmitt síðastnefndi titillinn sem er tilefni heimsóknarinnar. Þegar blaðamaður renndi í hlað var Ellý í óðaönn að koma nýjasta sköpunarverki sínu fyrir, stóru málverki sem hafði klárast fyrr um nóttina. Við mæltum okkur mót á vinnustofu hennar, þar tók hún á móti blaðamanni og ljósmyndara með útbreiddan faðminn og hlýtt bros. „Ég kláraði þetta í nótt,“ segir Ellý aðspurð um risa málverk sem stóð úti í janúarsólinni og beið þerris. Það vakti mikla athygli þegar Ellý auglýsti málverk sín til sölu í þeim tilgangi að safna fé til að greiða skuld og forðast yfirvofandi gjaldþrot. „Ég byrjaði að mála fyrir alvöru í fyrra. Þegar ég skildi fyrir tveimur árum var húsið okkar skrifað á mig, ég hafði sofnað á verðinum. Það voru mestu mistök ævi minnar. Aldrei aftur mun ég treysta neinum þegar kemur að peningamálum, sama hvað ég elska viðkomandi mikið. Það var allavega þannig að í fyrra var ekkert að ganga upp hjá mér. Ég var við það að gefast upp. Fráskilin, einstæð, húsnæðislaus, atvinnulaus og sjálfstraustið hvergi sjáanlegt.“„Ég mála risastórar myndir, óhefðbundnar, með spaða og það sem gleður mig svo mikið er að salan hefur gengið vonum framar.“Málverkasalan sló í gegn Fjármál Ellýjar fóru á hliðina eftir skilnaðinn, hún stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun og ákvað að reyna allt til að bjarga málunum. „Það var tvennt í stöðunni og það var að borga bankanum sem fór fram á eingreiðslu eða þá kveikja í kennitölunni minni. Ég byrjaði að mála og þá var eins og eitthvað opnaðist. Ég fékk strax jákvæð viðbrögð frá ókunnugu fólki sem keypti verkin. Ég ákvað sem betur fer að drepa óttann þarna og hrópaði óttalaus út í kosmósið að ég væri að mála myndir sem ég vildi selja því ég hafði engu að tapa. Ég mála risastórar myndir, óhefðbundnar, með spaða og það sem gleður mig svo mikið er að salan hefur gengið vonum framar.“Hjartað splundraðist og er ískalt Blái liturinn er áberandi í málverkum Ellýjar og því liggur beinast við að spyrja hvað valdi litavalinu. „Af því að hjarta mitt er kalt. Ískalt. Það er brotið. Það splundraðist í síðasta sambandi. Þess vegna mála ég bláar myndir. Ég finn ekki fyrir sársaukanum þegar ég mála og vandamálin hverfa eins og dögg fyrir sólu. Ég staldra ekki við leiðindi og ætla ekki að byrja á því núna. Kannski er það sjórinn sem kallar fram bláa litinn, pabbi var útgerðarmaður og afi líka. Táknar blár ekki styrk og fullkomið traust? Það er einmitt það sem ég leitast við að upplifa. Ég þrífst á algjöru trausti þegar kemur að mannlegum samskiptum. Ef ég finn það ekki þá læt ég mig hverfa. Annars nota ég liti sem höfða til mín hverju sinni. Blár virðist hafa yfirhöndina núna eins og kulnað hjarta mitt.“ Sambandið sem Ellý vísar í varði ekki lengi en því lauk fyrir skemmstu. „Þetta samband var helvítis mistök. En ég lærði af þeim.“ Ertu með hjartað tilbúið fyrir annan mann eða ertu enn að púsla því saman? „Ég gaf mig alla í sambandið sem ég var í. Ég varð ástfangin upp fyrir haus og hélt svo innilega að hann væri sá rétti. Annað kom hins vegar í ljós. En ég trúi enn á ástina og ég er ekki búin að missa vonina. Ég læt mig að minnsta kosti dreyma um að eignast sálufélaga sem er góður í gegn. Ég er samt ekki tilbúin í samband. Þarf að klára svo margt fyrst.“Hamingjan er ekki í stóru húsi Það er ekkert leyndarmál að staðan á húsnæðismarkaðnum er erfið, leiguíbúðir eru af skornum skammti og húsnæðisverð er hátt. Ellý er ein fjölmargra sem stóðu í þeim sporum að eiga í vandræðum með að finna húsnæði. Leitin skilaði árangri að lokum, hún býr ásamt dóttur sinni við mjög þröngan kost í miðbæ Reykjavíkur. „Okkur mæðgum líður vel, mér líður vel og þá líður henni vel. Fermetrar skapa ekki hamingju, trúðu mér, ég tala af reynslu. Við þá sem eru í þessum sporum, að hafa ekki í öruggt hús að venda, vil ég segja: Ekki missa trúna. Íslendingar hjálpa nefnilega náunganum. Og ekki hika við að biðja um hjálp. Pakka stoltinu niður í tösku og kveikja í henni þar sem það fuðrar endanlega upp.“Ellý lítur björtum augum á framtíðina og ætlar sér ekki í ástarsamband á næstunni. Fréttablaðið/ErnirMyndlistarsýning ekki á döfinni Málverkin hafa vakið mikla athygli og fá færri en vilja. Áhugasamir listunnendur hafa hvatt Ellý til að setja upp sýningu með verkunum, skyldi það vera á döfinni? „Nei, ég held ekki. Verkin mín seljast jafnóðum og fyrir það er ég þakklát. Ekki sjálfgefið. Alls ekki. Sýning er ekki á dagskránni. Uppgjör við bankann er efst á to-do listanum. Svo ég geti losað þessa helvítis hlekki.“ Einn þeirra titla sem hægt er að hengja á Ellý er spákonuheitið, en hún kann þá list að leggja tarotspil fyrir fólk og rýna í hið óorðna. Ellý var mjög vinsæl spákona og fjölmargir leituðu til hennar og því er eðlilegt að spyrja hvort hún muni taka spilastokkinn aftur upp? „Ég hef ekki tíma til í að spá í spilin og ég sakna þess. Stundum spái ég fyrir nánum vinum en ekki mikið meira en það. Ég kemst ekki yfir meira þessa dagana.“ellý ármansÁ endanum kemur sólin alltaf upp Það er samt einhver værð yfir henni og það er ekki að sjá að erfiðleikar síðasta árs hafi tekið sér bólfestu í sálinni. Það er augljóst að Ellý Ármanns ætlar sér að tækla tilveruna með stæl. „Ég er ekki þekkt fyrir uppgjöf. Þegar ég lít til baka þá er ég sátt við að hafa leyft hjartanu að ráða ferðinni þrátt fyrir svo harkaleg málalok. Ég vissi ekki hvort ég næði að lenda aftur á fótunum. En ég ætla ekki að staldra við vonleysi og sorg. Það er eins og það komi alltaf eitthvað gott og einstaklega fagurt út úr erfiðleikunum. Það er ekkert annað í stöðunni en að halda áfram.“ Framtíðin, er hún bjartari? „Já, ég vil trúa því. Æðri máttur er með mér. Ég tók mér hlé frá MBA-náminu til að klára þessi peningamál en stefni á að hefja það að nýju og halda áfram að mála. Ég er mjög ánægð með lífið og sátt við orrustur fortíðar og ég þarfnast einskis.“
Mest lesið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Varð móðir sextán ára Lífið „Restin í hárið“ reglan gildir í Flonkyball Lífið samstarf Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Lífið Fleiri fréttir Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Varð móðir sextán ára Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Heimafæðing Örnu Ýrar: „Ekki eins hræðilegt og margir halda“ Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Kynferðislegt ofbeldi: Kynlíf eftir áföll Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Steggjun endaði á árshátíð RÚV Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli Hvað ber að hafa í huga þegar hvolpur kemur á heimilið Lagið Yfirgefinn varð til þegar Valdimar öskraði á hljómsveitarmeðlimi Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða Öskur á tónleikum Laufeyjar öfugt ofan í aðdáendur Sjá meira