Stytta vinnuvikuna um fimm tíma Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2018 09:58 Leikskólarnir sem um ræðir eru Mánagarður, Sólgarður og Leikgarður. Vísir/Vilhelm
Leikskólar sem reknir eru af Félagsstofnun stúdenta munu stytta vinnuviku starfsmanna sem nemur um fimm klukkustundum, niður í 35 tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að launaskerðing verði engin. Markmiðið með styttingu vinnuvikunnar er sögð vera að stuðla að „auknu jafnvægi á milli atvinnu og einkalífs starfsfólks og þannig efla lífsgæði þess.“ Nýtt fyrirkomulag hefst 1. febrúar næstkomandi og verður endurskoðað 1. ágúst í sumar. „Reynsla af tilraunaverkefnum um styttingu vinnuvikunnar frá bæði Noregi og Íslandi hefur verið jákvæð. Sú hugmyndafræði að stuðla að betra jafnvægi á milli starfs og fjölskyldulífs hefur skilað sér í meiri starfsánægju fólks, en ekki síst aukinni ánægju í fjölskyldulífi,“ segir í tilkynningunni.Unnið að fjölgun plássa Leikskólarnir sem um ræðir eru Mánagarður, Sólgarður og Leikgarður, en þar starfa 55 starfsmenn og er pláss fyrir 183 börn á aldrinum sex mánaða til fimm ára. Vinna við stækkun á leikskólanum Mánagarði stendur nú yfir og að henni lokinni verður hægt að bjóða 128 börnum pláss, í stað 68 í dag. Haft er eftir Sigríði Stephensen, leikskólafulltrúa og leikskólastjóra á Sólgarði, að stöðugt sé verið að leita leiða til að efla ánægju og kjör starfsfólks. „Þetta verkefni hefur verið lengi í undirbúningi, en okkar von er sú að þetta muni hafa margþættan ávinning fyrir okkur hér á leikskólunum. Fyrir utan meiri lífsgæði, betri kjör og betri líðan starfsfólks vonumst við einnig til að þetta muni skila jákvæðum niðurstöðum hvað varðar minni starfsmannaveltu, en stöðuleiki í starfsmannaveltu skilar sér í betri þjónustu við foreldra og börn. Þetta hefur fengið afar góðar undirtektir hjá okkar starfsfólki og við erum því mjög spennt fyrir þessum breytingum.“ Við styttingu fullrar vinnuviku niður í 35 stundir verður rúllandi vaktafyrirkomulagi komið á sem verður skipulagt fram í tímann. Miðað er við að vinnuskylda muni minnka um eina klukkustund á dag.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira