Innlent

Með 106 pakkningar af kókaíni innvortis

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lögreglumaður fylgist hér með gangi mála í Leifsstöð.
Lögreglumaður fylgist hér með gangi mála í Leifsstöð. Vísir/Eyþór
Belgískur karlmaður, sem lögreglan segir hafa verið „mikið fatlaðan,“ var stöðvaður í Leifsstöð á síðastliðnu ári með rúmlega eitt kíló af kókaíni innvortis. Maðurinn hafði hlutað kílóið í 106 pakkningar og er þetta mesta magn sem fundist hefur í einum einstaklingi hingað til.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í uppgjöri lögreglunnar á Suðurnesjum um fíkniefnamál sem komu upp í flugstöðinni á síðasta ári. Í þeim 46 fíkniefnamálum sem upp komu í flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðastliðnu ári lagði rannsóknardeild lögreglunnar hald á rúmlega 42 kíló af hörðum fíkniefnum. Þar af voru rúm 35.000 grömm af kókaíni, tæp 7.000 grömm af amfetamíni, 196 grömm af metamfetamíni og 61 gramm af ecstasy (MDMA). Auk þessa voru haldlögð rúmlega 240 grömm af hassi.

Undirstrikað er í skeyti lögreglunnar að um bráðabirgðatölur er að ræða, sem kunna að taka smávægilegum breytingum þegar endanlegt heildaruppgjör ársins liggur fyrir.

300 kíló á götunni

„Styrkur haldlagðra efna í innvortis málum er yfirleitt mjög mikill eða um 90%. Styrkur í haldlögðum neysluskömmtum á götunni er á bilinu 7 – 15%. Því má ætla að margfalda megi ofangreind 42 kíló með 7 eða 8 sem gerir þá rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti,“ útskýrir lögreglan.

Langflest þessara mála segir lögreglan eiga upptök sín hjá tollvörðum sem hafa með höndum „mjög virkt og skipulegt eftirlit í flugstöðinni,“ eins og það er orðað. „Sú leið að reyna að smygla fíkniefnum þá leiðina verður því að teljast mjög áhættusöm fyrir þá sem það reyna.“

Þá minnir lögreglan á á afdrif rúmlega tvítugs íslensks karlmanns sem kom með 42 pakkningar innvortis til landsins í október. „Ein pakkningin tók að leka og var hann fluttur lífshættulega veikur með hraði á Landspítalann þar sem hann undirgekkst rúmlega 3ja klukkustunda skurðaðgerð,“ segir í skeytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×