Lífið

Lærir allt um tísku

Nýjustu tískustraumar fara ekki fram hjá Margréti.
Nýjustu tískustraumar fara ekki fram hjá Margréti.
Margrét Lea Bachmann hefur mikinn áhuga á tísku og ákvað því að mennta sig í þeim fræðum. Í náminu þarf hún að hafa augun opin fyrir öllu því sem er að gerast í tískunni.

„Ég hef lengi haft áhuga á tísku og sem krakki pældi ég mikið í hvaða snið passaði hverjum, hvaða litasamsetningar færu vel saman og fleira slíkt. Ég hafði mjög gaman af því að klæða mig í fín föt og var þekkt fyrir að vera í kjól í skólanum. Eftir því sem ég varð eldri varð áhuginn alltaf meiri og einnig sjálfstraustið til að þora að klæða mig eftir eigin höfði,“ segir Margrét Lea Bachmann sem býr í Barcelona. Þar er hún á öðru ári við nám í Fashion Marketing and Communication, eða tísku, markaðsmálum og samskiptum, og fram undan eru stór verkefni.



„Þetta nám varð fyrir valinu því mig langaði til að læra eitthvað sem tengdist tísku en ég var ekki alveg viss um hvaða svið hentaði mér best. Ég ákvað að fara í nám til útlanda því fjölbreytnin á þessu sviði er ekki mikil á Íslandi. Fatahönnun er að vísu vinsæl en hún heillaði mig ekki,“ heldur Margrét áfram.

Erfitt að fá tíu

Skólinn heitir IED Barcelona og námið fer fram á ensku. „Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og það var mikill munur að fara þaðan beint í allt öðruvísi skólakerfi. Í IED Barcelona er lögð mikil áhersla á verkefni sem tengjast atvinnumarkaðnum. Það eru fá próf og mjög erfitt að fá tíu í einkunn. Ég fór t.d. aðeins í tvö próf á fyrsta árinu og á öðru ári eru engin próf, aðeins verkefni. Hvert verkefni tekur um einn og hálfan til tvo mánuði svo ég þarf því að skipuleggja mig vel fram í tímann,“ segir hún.

Margrét Lea átti ekki von á að námið yrði jafnskemmtilegt og raun ber vitni.


Nútímatíska og textíll

Þegar námið hófst mættu fimmtíu nemendur til leiks og segir Margrét marga þeirra koma frá spænskumælandi löndum.

„Svo eru líka nokkrir frá hinum Norður­löndunum og við erum tvær frá Íslandi, ég og Hildur Ragnarsdóttir. Við þurftum snemma að velja okkur sérhæfingu, annaðhvort í markaðsmálum eða samskiptum og ég valdi hið síðarnefnda. Ég er í mörgum spennandi fögum sem tengjast tísku á sögulegan eða markaðslegan hátt og flest fögin eru mjög hagnýt. Ég sæki tíma í nútímatísku, textíl, framleiðslu, sögu tísku og lista, auglýsingum, lífsstíl og tískustraumum svo eitthvað sé nefnt. Mér kom á óvart hvað námið er bóklegt en mér finnst þetta allt áhugavert. Ég hélt mér myndi aldrei finnast svona skemmtilegt í skóla,“ segir hún brosandi.

Kærastinn flutti til hennar

Margrét undirbjó sig vel áður en hún flutti til Barcelona. „Umsóknarferlið fyrir skólann var langt og strangt og það tók sinn tíma að fá alla pappíra hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna samþykkta. Ég var svo heppin að fá leigða íbúð í Barcelona með tveimur Íslendingum, annar þeirra er Hildur skólasystir mín. Núna er kærastinn minn, Arnþór Daði Guðmundsson, fluttur til mín og við erum komin með eigin íbúð. Að lokum þurfti ég að ákveða hvað ég tæki með mér út og ég held það hafi verið erfiðast að skilja eftir hluta af fötunum mínum,“ segir Margrét hlæjandi.Með puttann á púlsinum.

Þegar Margrét er spurð hvort hún taki betur eftir nýjum tískustraumum eftir að hún byrjaði í náminu segir hún að svo sé. „Já, að vissu leyti. Ég tek klárlega betur eftir því hvað er að verða vinsælt. Okkur er kennt að vera með puttann alltaf á púlsinum og vera með opin augu yfir öllu því sem er að gerast í tískunni. Ég tek meira eftir trendum eins og í markaðsfræðinni og hvaða aðferðir eru nýjar og munu verða úti um allt á næstunni.“

Margrét lumar á góðum tískuráðum og hvetur fólk til að vera óhrætt við að fylgja eigin smekk og skapa sinn eigin stíl. „Mér finnst alltaf gaman að fylgjast með fólki sem er með persónulegan stíl og sker sig út úr norminu,“ segir hún.

En hvað skyldi taka við að námi loknu? „Fyrst og fremst er stefnan að ljúka náminu vorið 2019 og síðan langar mig að finna lærlingsstöðu í sumar og fá tilfinninguna fyrir því hvernig þetta nám reynist í atvinnulífinu. Maður veit svo aldrei hvort einhver tækifæri gefist við útskrift en kennararnir eru allir vel tengdir inn í tískuheiminn því þeir vinna við fagið auk þess að kenna. Draumurinn er síðan að fara í mastersnám einhvers staðar í heiminum. Þetta nám hefur gefið mér allt aðra sýn á tískuheiminn og kennt mér að fara skrefinu lengra í markaðs- og samskiptafræði,“ segir Margrét og sendir að lokum kveðju heim.

Fylgjast má með Margréti Leu á Instagram: margretleabachmann






Fleiri fréttir

Sjá meira


×