Þriðjungi lóða í Skarðshlíð skilað aftur til bæjarins 18. janúar 2018 07:00 Skarðshlíðarhverfið á að byggja upp á næstu árum. Það hefur nánast verið tilbúið til uppbyggingar í um áratug. Fréttablaðið/Eyþór
Hafnarfjörður Þriðjungi þeirra lóða sem úthlutað var frá Hafnarfjarðarbæ í öðrum áfanga Skarðshlíðarhverfis hefur verið skilað aftur til bæjarins. Hverfið hefur staðið nánast tilbúið í áratug. Bæjarstjóri segir ýmsar ástæður fyrir því að lóðum hafi verið skilað en fjármögnunarvandi og háspennulínur þvert yfir hverfið hafi verið gefnar upp sem ástæður. Af þeim 32 lóðum sem úthlutað var hefur ellefu lóðum verið skilað aftur til bæjarins. Skarðshlíðarhverfið hefur staðið nánast tilbúið síðan efnahagshrunið dundi yfir á haustmánuðum fyrir hartnær áratug. Bæjarstjóri telur ólíklegt að skil á lóðum tefji uppbygginguna. „Nei, það held ég ekki, við munum úthluta þessum lóðum aftur og erum að fara yfir hversu margar lóðirnar eru í heildina. Þær verða svo auglýstar aftur. Hinir eru komnir af stað með teikningar og annað slíkt,“ segir Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri. „Það er nú eitthvað af þessu vegna þess að fólk hefur ekki getað fjármagnað þetta. Svo hef ég líka heyrt af einum sem var í óvissu um hvenær háspennulínurnar færu. Annað kann ég ekki að skýra.“ Skipulagssvæði Skarðshlíðar er um 30 hektarar að stærð. Í stefnu bæjarins segir að stefnt sé að því að bjóða eftirsóknarvert búsetuumhverfi með því að leggja áherslu á vandað bæjarskipulag í tengslum við ósnerta náttúru. Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingar í minnihluta bæjarins, segir skipulagsbreytingar á svæðinu hafa tafið uppbyggingu hverfisins. „Í ljósi aðstæðna á húsnæðismarkaði og þessa litla framboðs á lóðum fyrir íbúðarhúsnæði þá er eitthvað sem má skoða í þessu ferli. Til dæmis hvort síendurteknar skipulagsbreytingar á þessu svæði hafi reynst skynsamlegar,“ segir Gunnar Axel. „Það hefur legið fyrir að þarna hefur verið heilt hverfi tilbúið til úthlutunar og í raun ótrúlegt að það hafi verið legið á því fram til loka kjörtímabilsins og ákveðið að endurskipuleggja hverfið í þriðja skipti á örfáum árum.“sveinn@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Sjá meira