Fótbolti

Coutinho byrjar ferilinn hjá Barcelona á meiðslalistanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Coutinho og nýi búningurinn. Hann á enn eftir að fá númer.
Coutinho og nýi búningurinn. Hann á enn eftir að fá númer. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho varð í dag formlega leikmaður Barcelona er hann skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við félagið.

Barcelona greiðir Liverpool 142 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er þar með orðinn dýrasti leikmaður í sögu Barcelona.

Er Coutinho skrifaði undir samninginn gaf Barcelona það út að bið yrði á því að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið þar sem hann væri meiddur.

Brassinn er meiddur á læri og verður frá í að minnsta kosti næstu þrjár vikurnar.


Tengdar fréttir

Coutinho: Draumur að rætast

Philippe Coutinho varð um helgina dýrasti leikmaðurinn í sögu Barcelona er félagið greiddi Liverpool 142 milljónir punda fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×