Fótbolti

Atletico örugglega áfram í undanúrslit

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Atletico fagna í kvöld
Leikmenn Atletico fagna í kvöld vísir/getty
Atletico Madrid komst örugglega í undanúrslit spænsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld með sigri á Lleida.

Mörk frá Yannick Carrasco, Kevin Gameiro og Vitolo í seinni hálfleik tryggðu Madrid 3-0 sigur á heimavelli.

Leikurinn í kvöld var seinni leikurinn í einvígi liðanna og var í raun aðeins formsatriði, þar sem Atletico vann fyrri leikinn 4-0 á útivelli og þurfti Lleida því að vinna með fimm mörkum til að fara áfram.

Lleida leikur í þriðju deild á Spáni og er þar í 11. sæti á meðan Atletico er í öðru sæti efstu deildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×