Fótbolti

Tvö mörk hjá Viðari Erni fyrir Maccabi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum í kvöld
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum í kvöld vísir/afp
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö marka Maccabi Tel Aviv sem bar sigurorð af Netanya í ísraölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Gestirnir í Netanya urðu fyrir áfalli eftir aðeins tíu mínútna leik þegar Yaaquv Mor var rekinn af velli með beint rautt spjald og þeir þurftu að vera manni færri í 80 mínútur.

Þrátt fyrir það tókst Maccabi ekki að brjóta ísinn fyrr en eftir 75. mínútur þegar Barak Itzhaki skoraði opnunarmark leiksins.

Viðar Örn bætti svo við tveimur mörkum, það fyrra á 82. mínútu og hann gulltryggði svo sigur Maccabi í uppbótartíma.

Með sigrinum breikkaði Maccabi bilið á milli liðanna í deildinni, en þau sitja í fjórða og fimmta sæti. Maccabi er nú komið með átta stiga forystu og er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Beer Sheva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×