Fótbolti

Sara Björk vill vinna þrennuna með Wolfsburg

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar Þýskalandsmeistaratitlinum.
Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar Þýskalandsmeistaratitlinum. Vísir/Getty
Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er með háleit markmið fyrir næsta ár, en hún vill vinna þrennuna með Wolfsburg og koma Íslandi á HM.

Landsliðsfyrirliðinn var í viðtali í kvöldfréttum RÚV, en hún var á dögunum valin knattspyrnukona ársins af KSÍ.

Sara Björk vann bæði Þýskalands- og bikarmeistaratitil með Wolfsburg á hennar fyrsta tímabili. Hún vill gera enn betur í vor og vinna Meistaradeildina líka, taka alla þrjá titlana sem í boði eru.

Eftir vonbrigðin á EM sagði Sara það hafa verið erfitt að byrja nýja undankeppni, en Ísland byrjaði þó frábærlega, með fjórum stigum úr leikjum við Þýskaland og Tékkland á útivelli.

„Ef ég á að vera hreinskilin var rosalega erfitt að byrja nýja undankeppni eftir EM, það var andlega erfitt. Fínt að byrja gegn Færeyjum, unnum stórt og skoruðum mörk, og fengum gleðina til baka,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×