Fótbolti

Viðar kom Maccabi á bragðið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar er kominn með fimm deildarmörk í vetur.
Viðar er kominn með fimm deildarmörk í vetur. vísir/andri marinó
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum þegar Maccabi Tel Aviv bar sigurorð af Shmona, 2-1, í ísraelsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Viðar skoraði fyrra mark Maccabi á 19. mínútu.

Selfyssingurinn var markakóngur ísraelsku deildarinnar á síðasta tímabili en hann hefur ekki verið jafn iðinn við kolann í vetur. Viðar er kominn með fimm deildarmörk á tímabilinu.

Maccabi er í 3. sæti deildarinnar með 29 stig, þremur stigum á eftir toppliði Hapoel Haifa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×