Enski boltinn

Kane: Ótrúlega góð tilfinning að vera borinn saman við Messi og Ronaldo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kane skorar og skorar.
Kane skorar og skorar. vísir/getty
Harry Kane er búinn að slá bæði Lionel Messi og Cristiano Ronaldo við á þessu ári og viðurkennir að það sé afar góð tilfinning að vera borinn saman við þá tvo.

Hinn 24 ára Kane bætti markametið hans Alan Shearer yfir flest mörk á einu ári með þrennunni gegn Southampton í gær en hann er með 39 mörk í deildinni á árinu og 56 mörk í öllum keppnum.

„Þetta er búið að vera stórkostlegt ár. Ég er alltaf að hugsa um að bæta mig á hverju ári og ég mun halda áfram að gera það,“ sagði Kane en hann hefur skorað þrennu í tveimur leikjum í röð.

Það hafa engir leikmenn getað keppt við Messi og Ronaldo í markaskorun síðustu ár og það er gríðarlegt afrek hjá Kane að skora meira en þeir að þessu sinni.

„Að vera borinn saman við þessa leikmenn sem og Alan Shearer er það sem allt snýst um. Messi og Ronaldo hafa drottnað yfir fótboltanum svo lengi og er tveir af þeim bestu frá upphafi. Það er ótrúlega góð tilfinning að vera borinn saman við þá.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×