Enski boltinn

Fellaini: Mourinho mun bera virðingu fyrir ákvörðun minni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fellaini í leik í vetur.
Fellaini í leik í vetur. vísir/getty
Marouane Fellaini íhugar framtíð sína þessa dagana en ansi margt bendir til þess að hann muni yfirgefa Man. Utd næsta sumar.

Þessi þrítugi miðjumaður verður þá orðinn samningslaus og það hefur gengið illa að fá hann til þess að skrifa undir nýjan samning.

„Ég veit ekki hvað ég mun gera. Ég er að hugsa ýmislegt sem ég get ekki sagt frá núna. Þetta er mitt tíunda tímabil á Englandi og fyrir utan fyrsta tímabilið hjá United þá þekki ég bara góða tíma,“ sagði Fellaini.

„Ég er samt enn hér. Ef United vildi ekki hafa mig þá hefði félagið sagt mér það fyrir löngu síðan. Félagið hefur gert mér nýtt tilboð og ég á von á öðru tilboði. Hvort ég muni samþykkja nýjan samning er svo annað mál.

„Ég hef rætt mína stöðu við Mourinho. Stjórinn er maður sem ber virðingu fyrir ákvörðun leikmanna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×