Fótbolti

Inter vill fá tvo leikmenn frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vidal hefur ekki náð sér á strik með Barcelona.
Vidal hefur ekki náð sér á strik með Barcelona. vísir/getty
Forráðamenn ítalska félagsins Inter eru stórhuga fyrir nýja árið og ætla að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í janúar.

Inter er nú með augastað á tveimur leikmönnum Barcelona. Þeim Gerard Deulofeu og Aleix Vidal. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er Barcelona til í að lána þá báða í tvö ár með möguleika á kaupum að lánstíma loknum.

Málið er sagt vera nokkuð langt komið og í raun vantar aðeins samþýkki frá leikmönnunum um að þeir vilji fara til Ítalíu.

Inter getur í raun aðeins fengið þá lánaða á þessum tímapunkti svo félagið sé innan ramma UEFA varðandi fjárhagsreglur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×