Lífið

Glódís og Steinþór eignuðust barn í nótt: „Bídduuuuuu er þetta ekki pungur?“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinþór Helgi Arnsteinsson og Glódís Guðgeirsdóttir þegar þau tilkynntu um óléttuna.
Steinþór Helgi Arnsteinsson og Glódís Guðgeirsdóttir þegar þau tilkynntu um óléttuna. MYND/ÁSGEIR PÉTUR
Margverðlaunaða fimleikakonan Glódís Guðgeirsdóttir fæddi barn í nótt. Í tuttugu vikna sónar hafði foreldrunum verið tilkynnt að um væri að ræða stúlkubarn en öllum að óvörum var það lítill drengur sem heilsaði heiminum í nótt.

„Þessi lilli sem plataði alla mætti með trompi kl 3 í nótt. 2 sek eftir að hann var mættur heyrðist „bídduuuuuu er þetta ekki pungur!?“ enda hafði okkur verið tjáð að við ættum von á lillu í 20 vikna sónar,“ segir Glódís á Facebook.

Hún er í sambandi með Steinþóri Helga Arnsteinssyni. Steinþór er spurningahöfundur og dómari í Gettu betur og athafnamaður, og Glódís hefur meðal annars orðið Íslands-, Norðurlanda- og Evrópumeistari í hópfimleikum.

Hér fyrir neðan má sjá fallega mynd sem Glódís birti af drengnum á Facebook.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×