Lífið

Datt einstaklega vandræðalega í miðri athöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Noah Nicholls mun aldrei gleyma þessu brúðkaupi.
Noah Nicholls mun aldrei gleyma þessu brúðkaupi.
Noah Nicholls lenti í heldur óvenjulega atviki á dögunum þegar hann féll niður í miðju brúðkaupi.

Nicholls hefur nú fengið upptöku af atvikinu senda og deilir hann henni sjálfur á YouTube en um er að ræða eina vinsælustu klippuna á Reddit þegar þessi frétt er skrifuð.

Drengurinn fellur kylliflatur á andlitið á ótrúlegan hátt, og bregður brúðhjónunum augljóslega mjög eins og sjá má hér að neðan.

Hann segir á Reddit að presturinn hafi verið afar langorður og ræða hans tekið yfir fjörutíu mínútur, eitthvað sem reiknað var með að yrði tuttugu mínútur. Sjálfur hafi hann verið ósofinn, læst hnjánum og svo vaknað á gólfinu.

Nicholls segist hafa nefbrotnað, kjálki hans sé í köku og tennur brotnuðu. Hann hefur þó mikinn húmor fyrir öllu saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×