Lífið

Obama brá sér í hlutverk jólasveins

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Barack Obama, ansi jólalegur, við tendrun jólaljósa í Washington árið 2012.
Barack Obama, ansi jólalegur, við tendrun jólaljósa í Washington árið 2012. Vísir/Getty
Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gerði heldur betur gott mót þegar hann heimsótti æskulýðsklúbb í  Washington á  fimmtudag. Obama var hlaðinn gjöfum til barnanna, skartaði jólasveinahúfu og er óhætt að segja að heimsóknin hafi fallið í kramið.

„Það er enginn betri tími en hátíðarnar til að gefa af sér til samfélagsins. Það var frábært að heyra frá ungu fólki í Stráka og Stelpuklúbb DC í dag,“ skrifaði Obama á Twitter síðu sína og birti mynd með krakkaskaranum.



Einnig náðust viðbrögð barnanna við þessum nýja jólasveini á myndband og er gleðin hreinlega smitandi. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×