Lífið

Skautasvellið á Ingólfstorgi opnað í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikil stemning hefur verið á svellinu undanfarin ár.
Mikil stemning hefur verið á svellinu undanfarin ár.
Það er allt að verða tilbúið á Ingólfstorgi en þar verður ljósadýrð í desember því skautasvellið opnar á torginu í kvöld klukkan 19.00.

Svellið verður opið alla daga til og með 23. desember frá klukkan 12.00 – 22.00. Frítt er inn á svellið fyrir gesti sem koma með skauta með sér en hægt er að leigja skauta og hjálm fyrir kr. 990,- (kr. 790,- ef greitt er með AUR appi).

Grindur til að styðja sig við er einnig hægt að leigja fyrir kr. 990,-.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×